Ég er farin að halda að Auður hafi haft rétt fyrir sér þegar hún sagði að ég væri gæðablóð! Moskítóflugurnar eru að sjúga úr mér allt blóð! Ef ég verð bara ekki dauð úr blóðleysi áður en ég kem heim! Fyrst voru það 4 bit, svo önnur 4 bit, svo 16 bit og þar á meðal eitt í andlitinu, þess næst voru það 7 bit og núna eru þau 4 og eitt í andlitinu! Á hægri kinninni þannig það er lítill séns fyrir mig að fela það! Ég gat það þó í fyrra skiptið með því að setja hárið fyrir en það er bara ekki hægt núna! Mér finnst þetta nú hætt að vera sniðugt! Ekki það að þetta hafi nokkurn tímann verið sniðugt!
Afhverju er það svoleiðis að maður finnur sér alltaf eitthvað annað að gera þegar maður á að vera læra? Jújú, ég er að fara í spænskupróf á morgun og ég held að það væri nú frekar sniðugt hjá mér að glugga aðeins í bækurnar! Ekki það að ég hafi ekki nægan tíma! Nú veit ég ekki hvernig spænskusystemið er í menntaskólum heima en ég get verið nokkuð viss um að ég sé búin að læra margfalt meira á þessum eina mánuði heldur en á einni önn í þessum skólum! Ég veit ekki alveg hvernig ég á að komast í gegnum allt þetta efni og muna eftir þessu! minnið er ekki að gera eins góða hluti og það gerði hér í denn! sem er slæmt sko!
Hver hefði trúað því að ég, Arna Magnúsdóttir, væri búin að lesa heilar 3 bækur síðan ég kom út! Okay, kannski ekki heilar! Á 1/3 eftir af Flugdrekahlauparanum en af einhverjum ástæðum hætti ég allt í einu að lesa hana, sem er kjánalegt afþví hún er geggjuð, svo kláraði ég The Boy In The Striped Pajamas eða Strákurinn í röndóttu náttfötunum, á 2 dögum sem er örugglega met, en sú bók er alveg hreint mögnuð og er planið að sjá myndina og svo er ég rúmlega hálfnum með No Country for Old Men sem er líka rosalega góð og er planið að horfa á myndina þegar ég er búin að lesa hana! Svo ekki nóg með það að ég sé búin að lesa þessa, en þá bíða enn fleiri eftir mér! En núna er búðin Fnac orðin uppáhaldsbúðin mín því þar er endalaust að finna af góðum bókum! Er með fullt af bókum í bókahillunni sem ég er búin að kaupa síðan ég kom út sem þarf að lesa! Yeab, ég er orðin lestrarhestur aftur! Held ég eigi skilið 3falt HÚRRA.
Svo er ég búin að vera á fullu að skoða flug heim um jólin. Eins og staðan er í dag þá kem ég sennilegast til landsins 15. des og fer aftur út um 10. jan þannig ég fæ nánast mánuð heima sem verður geeeðveikt! :D spilakvöld með familínnu, rúntur með stelpunum, fyll*** með stelpunum ;) svo ég tali nú ekki um það hvað ég er spennt að heimsækja alla á sjúkrahúsini :) get ekki beðið! En eins og segir hér í fyrirsögninni, þá er ég búin að vera hérna í eina 57 daga og þeir hafa verið alveg fáránlega fljótir að líða! Verð komin heim og aftur út áður en ég veit af!
Gaman að segja frá því að ég er búin að eignast spænskan félaga og það fyrir algjör tilviljun! Svoleiðis eru mál með vexti að eitt kveldið þá vorum við Ella á pöbbinum okkar góða og það kom upp að okkur menn sem að sjálfsögðu töluðu ekki ensku þannig þeir náðu í vin sem talaði ensku! Þá fórum við að spjalla við hann og bara allt í góðu með það! Svo einn daginn þegar ég var að bíða eftir að fara í tíma þá labbar þessi sama maður niður stigann í skólanum! Hann spottar mig og við förum bara að spjalla og erum við búin að gera það nokkrum sinnum síðan! hversu lítill heimur? En hann er að læra þýsku afþví hann á þýska kærustu! Auður, kannski þú getir spjallað við hann ;) hehe
Svo er líka gaman að segja frá því að nýi au-pairinn hjá Valda og Mar var með mér í fótboltaskólanum á Englandi 2003! Enn og aftur! Þetta er svo lítill heimur krakkar mínir! :)
Svo er einn rútubílastjóri farinn að hafa sérstakan áhuga á mér afþví ég var í Arsenal-búning en hann er víst mikill Man.Utd. aðdáandi! segir alltaf ,,Arsenaaal" þegar ég mæti á mínu sama tíma í strætó :) svo er maður sem fer alltaf á sama tíma og ég í strætó, alltaf með sama rauða trefilinn og sömu Real Madrid töskuna! Hann drífir sig alltaf svakalega úr strætó þegar við erum kominn inn í Madrid en ég næ alltaf sama metro og hann þó svo ég fari bara í mínum mestu makindum leið mína!
Heyriði, svo var ég næstum því rænd í metro um daginn! Ljótu menn sem króuðu mig af og hrintu Þórdísi í burtu! Allt í einu finn ég einhvern koma við mig og taskan mín var opin! Eina sem ég gerði var að segja ,,Stelpur, maðurinn reyndi að ræna mig" í mestu rólegheitum! Mar sagði við mig að ég hefði átt að öskra á hann en mér brá bara svo! haha! Þeir fóru út á næstu stoppistöð!
En jæja, ég held að ég fari að segja þetta gott í bili! Vildi bara láta vita að ég væri á lífi!
Áfram Barack Obama!!!
04. nóvember 2008 klukkan 20:28
Arna Magnúsdóttir 7 athugasemdir
Jæja, þá er netleysi mitt á enda! sem er gott, sem er gott! Lífið gengur sinn vanagang hér í Villanueva del Pardillo eins og venjulega! Ég vakna með stelpunum, fer í skólann, leik mér eitthvað inní Madrid eða fer beint heim eftir skólann og bralla eitthvað heima! fer með stelpurnar á róló, elda matinn og svona! Ella mín er farin sem er ekki alveg nógu gott en það er ný íslensk stúlka að koma og aldrei að vita nema maður nái tengslum við hana! But noone will ever replace you Ella! ;)
Stefanía er í heimsókn og kíktum við systur ásamt Þórdísi út á lífið á laugardaginn og var það bara fínasta fínt! Við kítkum svo aðeins í búðir í dag eftir skóla og ég held í alvöru talað að ég hafi aldrei verið eins illt í fótunum á ævinni! Held að það hafi reyndar meira með það að gera að ég er orðin eitthvað slöpp! Svo ætlum við að að fara með Ingu í moll á morgun! kannski maður fari að fjárfesta í skóm svo ég geti lagt rifnu skóna á hilluna!
Það er svo sem ekki mikið búið að gerast hjá mér síðustu vikuna! Við Ella kíktum á Santiago Bernabeu í skoðunarferð á mánudaginn síðasta og þó svo ég hafi farið á hann áður þá verður það aldrei gamalt! Hann hættir ekki að vera magnaður! Það er eins gott að maður finni sér einhvern til að koma með sér á leik í vetur! Það gengur ekki að þykjast vera einhver fótboltaáhugamanneskja og fara svo ekki á leik hjá liði sem maður þykist vera aðdáandi!
Ég er að reyna eins og ég get að finna upp á einhverju skemmtilegu til að segja en ég er alveg gjörsamlega tóm! Mér langar mest af öllu bara að kúra mér og halda áfram að horfa á Ally McBeal! Augun mín eru orðin rauð af þreytu! Eða það sagði allaveganna María Vigdís! Og vitiði, ég held ég fari bara að hátta mig og koma með betur fyrir í bælinu!
Hasta luego!
27. október 2008 klukkan 20:08
Arna Magnúsdóttir 3 athugasemdir
Hola! Buenos tardes! Hvað segja bændur þá? Ástæðan fyrir þessu bloggleysi mínu er sú að netið hefur legið niðri sökum þess að við vorum að fá nýjan router eða hvernig sem það er nú skrifað! I was going out of my mind!
Annars er margt og mikið búið að gerast síðustu daga! Sumt gott og annað ekki svo gott! Ella mín er flutt inn og verður hjá okkur þangað til á þriðjudaginn en hún er að yfirgefa mig og fara aftur til heimalandsins! Mikið svakalega á eftir að sakna hennar við höfum náð að tengjast miklum vináttuböndum þennan síðastliðna eina og hálfa mánuð! Alveg ómetanlegur tími! Er svolítið smeyk samt við þetta allt saman! vona að ég eigi ekki eftir að verða einmana! een ég er nú farin að kynnast stelpunum í skólanum þannig það verður voanandi ekki svo mikið vesen!
Svo lenti ég í svaka veseni á lestarstöðinni í La Garena í gær þegar ég fór að heimsækja Þórdísi! Þannig var það ég þegar ég fór inn í lestarstöðina þá fékk ég ekki miðann minn tilbaka en ég verð að hafa hann til að komast líka út! Þórdís spjallaði við einhvern karl þarna og ætlaði að útskýra þetta fyrir honum en hann varð svona líka pirraður og þau hnakkrifust þarna! Hann ætlaði ekki að hleypa mér út og hann ætlaði ekki að leyfa henni að kaupa sér miða og fara með lestinni og svo ætlaði hann að hringja á lögregluna! Endaði með að það þurfti að borga honum 8 fokking evrur! Svo til að kóróna allt þá ætlaði hann ekki að leyfa mér að fara aftur í lestina! En það var annar maður þarna sem leyfði mér að fara! meira helvítist ruglið! anywaaays!
En svona til að ,,kveðjast" almennilega þá kítkum við Ella smá út í gær! Vorum alltaf á leiðinni heim en enduðum svo því að taka síðasta strætóinn heim! Við skemmtum okkur bara rosa vel en þreytan var farin að segja vel til sín undir lokin! Ég er að segja það, ég er með einn besta sannfæringarkraft í heimi! Ef það hefði ekki verið fyrir hann hefðum við farið eldsnemma heim og farið að sofa en í staðinn var bara alveg rosalega gaman :) Núna liggjum við bara upp í rúmi að kúrast og hafa það gott :)
Svo er fiesta í bænum okkar og svaka partý búið að vera síðustu daga! við Ella kíktum með stelpurnar niðrí bæ til að horfa á nautahlaup en við misstum af því Ellu til mikilla ama! Ég var nú ekkert sérstaklega spennt fyrir þessu þar sem mér finnst þetta ljót meðferð á dýrum! Svo ég tali nú ekki um hvað nautaAT er ljótt! Svo var að sjálfsögðu fínn og góður sunnudagsmatur eftir daginn :)
Spænskan er öll að koma til og er ég farin að skilja alltaf meira og meira og aaðeins farin að gera bjargað mér! Var alveg að brillera í spænskunni í gærkvöldi!
Svo er Stefanía að koma eftir viku og ég hlakka meget meget til að sjá hana! Svo fer ég nú að að panta mér flugmiða heim um jólin! Það verður of gott að hitta alla og hlaða battery-in fyrir síðustu 8 mánuðina!
Annars finnst mér alveg ótrúlegt hvað allt hefur gengið vel! mér finnst hlutirnir eiginlega vera að ganga of vel! Ég var alveg að búast við brjáluðri heimþrá en ég hef einhvern veginn ekki fengið hana ennþá þó svo að sjálfsögðu ég sakni allra heima og ef ég fengi að ráða þá væru allir sem eru heima hérna hjá mér! Ég er alltaf að bíða eftir einhverju slæmu sem á eftir að gerast fyrir mig! Ég veit ekki afhverju! anywaaays...
Ég held ég segi þetta gott í bili og fari að horfa á nýjasta Grey's þáttinn! Ég tók nokkrar myndir af þorpinu mínu sem ég ætla að setja inn bráðum þannig þið fylgist bara með ef þið viljið sjá litla sæta þorpið mitt :)
Hasta luego!
19. október 2008 klukkan 14:49
Arna Magnúsdóttir 3 athugasemdir
Sælt veri fólkið! Hvernig hafa svo allir það heima í kreppunni? Minn dagur er búinn að fara í það að liggja upp í sófa og horfa á alls konar þætti í tölvunni! Byrjaði kl hálf 4 og er enn að fyrir utan kvöldmatarpásu. Stelpurnar eru hjá ömmu sinni og afa þannig ég hef ekkert séð þær í allan dag og ég er bara ekki frá því að ég sakni þeirra smá! Veit eiginlega ekki afhverju ég er að blogga þar sem ég hef voðalega lítið marktækt að segja!
Kjellan kíkti útá lífið í gær með henni Theo. Grænlenskri stelpu sem ég kynntist í skólanum. Við skemmtum okkur bara mjög vel og var ég komin heim kl 6 og ég er ekki að grínast! mér var orðið líkamlega illt af þreytu! Enda ekki ætlast til að manneskja eins og ég vaki í 22 klst! Skólinn gengur bara alveg þokkalega hjá mér! Hins vegar panikka ég alveg svakalega alltaf þegar ég á að segja eitthvað! það snúa sér alltaf allir við og horfa á mann og svo er hlegið stundum og svona ég er ekki að höndla þessa pressu! Ég er samt farin að skilja aaðeins meira þó svo að það sé nú ennþá af skornum skammti! Ég er farin að kynnast samt nokkrum stelpum aðeins betur. Ég ákvað á fimmtudaginn að vera voðalega dugleg og tala við þær í skólanum en svo þegar kom að ögurstundu þá þorði ég því ekki! Þannig eftir skóla ákvað ég að túristast aðeins þar sem ég átti ,,the day off". Fór á Plaza de Espana og labbaði að konungshöllinni og niður í garð sem er þar og tók nokkrar myndir og skoðaði mig um! tók svo upp kort af Madrid og var svona að spekulera hvert ég ætti að fara næst en ákvað svo bara að fara heim! Ég var eitthvað ekki í góðu skapi við sjálfa mig að reyna ekki að tala við stelpurnar. En svo þegar ég var að labba úr garðinum þá mæti ég stelpunum og fer að leika við þær :). Tvær voru frá Þýskalandi, ein frá Austurríki og svo þessi grænlenska. Talaði mest við Söru sem er frá Austurríki og Theo og náðum við nokkuð vel saman. Og eins og ég sagði þá fórum við Theo út í gær :) Svo var ég bara engan veginn að nenna út í kvöld :) Svo heyrist mér eins og það sé heavy rigning og vindur! jafnvel eldingar en ég nenni ekki að tjekka á því!
En svo ég haldi nú áfram að tala um Spánverja en þá hef ég tekið eftir því að, allavegnna stelpurnar, þær þvo sér ekki alltaf um hendurnar þegar þær eru búnar á klósettinu! Finnst þetta alveg stórmerkilegt! Ég meina, er þetta ekki eitthvað sem maður kennir börnunum sínum um leið og það fer að nota klósettið! Jahh, það hefði ég allaveganna haldið! Skil þetta ekki alveg! Og svo ég haldi áfram að tala um draumana mína líka! Nú síðast þá dreymdi mig rússíbanaslys! Mér finnst þetta alveg svakalegt! Ég er nú ekki vön að muna draumana mína en nú allt í einu eru það hver martröðin á fætur annari! Ég veit ekki alveg hvað ég á að halda!
En jæja, ætli ég fari ekki að segja þetta gott í bili! Ætla að setja inn nokkrar myndir í albúmið eftir smá...
Þangað til næst, -Arna
Ég og Theo
11. október 2008 klukkan 22:24
Arna Magnúsdóttir 6 athugasemdir
Jáá, krakkar mínir! Það er gaman að segja frá því að ég vaknaði með ca 17 bit í gærmorgun! Hlýt að vera svona mikið gæðablóð eins og Auður sagði mér! Þetta eru ein mestu óþægindi sem ég hef nokkurn veginn fundið! (AAAAA, það var ein moskítófluga að fljúga á mig!! hún verður svo leituð upp á eftir og DREPIN!!) anyways! Ég er alls staðar með bit! Höndum, fótum, andliti, upphandleggjum, ristum, 2 í örinu góða á úlnliðnum og er það orðið riiisastórt og bólgið! Svo ég tali nú ekki um litlu tánna mína sem var 3föld í gær! Eeeldrauð og glerhörð! Núna er hún hins vegar bara fjólublá og marin! Ahh, lífið alveg að leika við mig hérna! Ég er gjörsamlega að sturlast! Hér eftir verður sofið í náttfötunum sem ég keypti mér um daginn! langerma treyja og síðar buxur og íþróttasokkar yfir buxurnar svo þær fari alveg örugglega ekki upp þegar ég er að bilta mér!
Annars er voðalega lítið margtækt búið að gerast þessa dagana! Við Ella lékum okkur á föstudaginn þangað til strætó fór heim kl 11 og skemmtum við okkur bara þokkalega! Endum alltaf einhvers staðar á breskum pöbbum! Sem er svo sem alveg ágætt! Annars fór laugardagurinn og sunnudagurinn í ekki neitt! Nei, ég segi nú ekki neitt! Var með hausverk frá helvíti á sunnudaginn! Er búin að vera með hausverk og magaverki nánast frá því ég kom hingað! En á morgun verður mánuður síðan ég kom! Ekki að fíla þetta!
Ella ætlar að skella sér til Barcelona yfir helgina þannig ég geri væntanlega ekki neitt um þessa helgi heldur! en hún kemur nú á sunnudaginn og ætlar að vera hjá mér til þriðjudags þannig það á vonandi eftir að krydda aðeins upp á lífið hjá mér ;) Annars verð ég nú að segja ykkur frá lítilli sögu af okkur frá því í dag! Þannig var mál með vexti að við ákváðum að kíkja á kínverksan stað sem Ellu langaði að prófa! Við leggjum af stað með lítið kort af því hvar hann var! Ég alveg eins og herforingi vissi nákvæmlega hvert við vorum að fara og allt að ganga eins og í sögu! Svo komum við að krossgötum og vorum við nú ekki vissar hvort við ættum að halda áfram eða beygja til vinstri! sáum ekki staðinn frammundan þannig við ákveðum að beygja til vinstri! Fundum við svo aldrei staðinn þannig við fundum okkur bara annan stað til að borða á! Ég var nú samt ekki alveg nógu sátt með þetta þar sem ég vissi að við værum á réttum stað allaveganna miðað við kortið! Svo þegar við erum á leiðinni til baka er ég bara að skoða mig um og lít upp! Er þar ekki staðurinn sem við ætluðum að fara á á 2. hæð! Og getiði hvar hann var? Á fokking horninu þar sem við vorum þegar við vorum að ákveða hvort við ættum að fara áfram eða til vinstri! Eeekki töff! förum þangað einhvern daginn!
Bryndís Aradóttir!! á ég að segja þér svolítið!! Ég afrekaði það í kvöld að brúna kartöflur! Alveg sjálf með engann til að hjálpa mér! Ég er klárlega að gera miklu betri hluti en þú í eldhúsinu! Gaman að segja frá því að ég eldaði kalkún með vínberjasósu og brúnuðum kartöflum í kvöld! Vicente voða sáttur með þessa sósu en það var óhætt að segja að hún var spees! Annars er ég búin að elda nánast öll kvöld frá því ég kom og búin að elda ýmislegt sem ég hafði aldrei gert áður! Eins og t.d. kalkúninn í kvöld, svínakótilettur, steikti fisk í 1. skipti, lasagna frá grunni sem var geeðveikt gott þó ég segi sjálf frá :) miklu betra en þessi í pökkunum! og já, ýmsilegt fleira skemmtilegt! verð að skrifa niður uppskriftir og koma með heim svo það sé hægt að breyta aðeins til í eldhúsinu heima ;)
Talandi um heima! Ætlar þetta engann endi að taka heima á Íslandi! líður bara illa af því að lesa allar þessar fréttir! Finnst þetta alveg aagalegt! Núna verður sko ekki eytt meiri pening heldur en bara vikulaununum! verð búin með peninginn minn á no time ef ég fer að eyða peningunum sem ég í bankanum heima! Í bankanum heima sem er gjaldþrota og ekki hægt að taka út af! hmm....
Eins og áður þá finnst mér eins og ég sé að gleyma einhverju en ég get bara ekki munað það! Þannig ég segi bara stopp hér og held ég fari bara að sofa! hef aldrei á ævinni sofið eins lítið og hérna! fer yfirleitt að sofa í kringum 1-2 afþví ég get ekki með nokkru móti sofnað og vakna alltaf kl 8! og hef náttúrlega eengan tíma til að sofa á daginn eins og gerði alltaf heima! sem er kaldhæðnislegt þar sem ég bý í landi þar sem er siesta og margir fara að sofa! Anyways, ætla að fara að lúra! Held varla augun uppi hérna!
Bið að heilsa öllum heima og sakna ykkar ;* og ég bið sérstaklega að heilsa Ara og Huga litlu sætustu frændum mínum ;) bíð spennt eftir myndum frá nýja húsinu! :) Þangað til næst, Arna! ;)
07. október 2008 klukkan 21:52
Arna Magnúsdóttir 8 athugasemdir
Hvar væri ég án internetsins? Svona í alvörunni! Þar sem ég er hérna á hjara veraldar þar sem gjörsamlega allt í talsett hefur netið algjörlega haldið mér frá því að ganga af vitinu! YouTube stendur náttúrulega alltaf fyrir sínu! Man eftir því fyrir svo löööngu síðan þegar ég var alltaf á YouTube og enginn vissi hvaða síða þetta var! Þar hef ég get getað horft á nokkra Gossip Girl og One Tree Hill þætti! Hins vegar hef ég komist í kynni við nýju uppáhalds síðuna mína! Já, það er búið að kynna mér fyrir http://www.surfthechannel.com þar sem ég get horft á allt mögulegt! Svo ég tali nú ekki um hvað það er gott að komast loksins í tölvuna mína og get ég hætt að nota th, ae og o í staðinn fyrir ö hér eftir!
Spánverjar eru undarlegt fyrirbæri og leyfið mér að segja afhverju:
Eins og þið kannski vitið þá talar ENGINN ensku hérna! nema þær tvær manneskjur sem ég hitti í dag!
Mér er sama hvað hver segir en þá virði þeir ekki raðir! Mér var sagt það þegar ég kom að raðir væru heilagar hérna en ég veit ekki hvað margir hafa ruðst (?) fyrir framan mig þegar ég stend í röð!
Þeir geta verið alveg rosalega ótillitsamir eins og fékk að kynnast í röð í skemmtigarðinu en þá ákvað einhver góð kona að helst að kveikja í hárinu mínu þegar hún var að reykja fyrir aftan mig! Svo ákveða þeir að kveikja í sígarettum í pínupínupínu litlum rýmum svo að maður fá alveg örugglega að reykja með þeim!
Þegar stelpurnar vakna á morgnanna og ákveða sig í hvaða föt þær eigi að fara þá vilja þær helst sleppa því að vera í fötum! Ég get svo svarið það! Það voru 4 stelpur í skemmtigarðinum sem voru of pirrandi svo ógeðslega klæddar að ef ég hefði séð þær á hórugötunni þá hefði ég haldið að þær væru bara í vinnunni!
Svo ég tali nú ekki um það hvað allar stelpur vilja helst hafa buxurnar fyrir neðan rassinn! Það eru ekki ófáir plömmerarnir sem maður hefur séð eftir að ég kom!
Þetta er eitt ástfangnasta fólk veraldar! Ég er stundum skapi næst að ganga upp að þessu fólki og ÆLA á það! Þetta er ógeðslegt! Geta ekki tekið tungurnar úr kokinu á hvort öðru!
Og gamalt telur sig vera heilagt!
Jæja, spænsk menning 101 lokið og aldrei að vita að 201 muni vera kenndur hérna í framtíðinni!
Annars var fyrsti dagurinn í skólanum í dag og var þetta bara fínasta fínt! Bróðurparturinn af bekknum eru Þjóverjar og þeir sem þekkja mig vel vita það að mér er alveg meinilla við Þjóðverja! (og Kínverja) Allaveganna! Þá voru þarna tveir þýskir strákar sem gjörsamlega töldu sig eiga heiminn! Annar voðalega svalur og vissi allt eða það taldi hann og hinn voðalega svalur í jakkafatabuxum og skyrtu! Og þurftu þeir að sitja milli okkar Ellu! og hinum megin við mig var grænlensk gella! Gaman af því! Og svo allar þýsku stelpurnar að hlæja þegar einhver sagði eitthvað ekki alveg 100% rétt og þær vissu ekkert meira en hver annar þarna inni! Nú tala ég eins og ég hafi alveg hatað allt þarna, en þetta er samt bara fínn skóli og mér lýst bara vel þá þetta :)
Svo er ég 2svar búin að fara að ná í lestar/strætó kortið mitt og er það ekki enn komið! Og í fyrra skiptið þá var konan alveg að missa það! Skildum hvor aðra ekki neitt! Nennti engan veginn að fara í dag þannig ætli maður tjekki ekki á þessu eftir helgi þar sem ég er að fara að leika við Ellu á morgun eftir skóla og ætlum við að bralla eitthvað og kíkja í öllara um kvöldið? Aldrei að vita!
Ég heyrði í fólkinu mínu í gær á msn og var með þau í webcam og það var of gott að sjá þau öll ;) Núna verða allir að fá sér webcam ef þeir eiga það ekki fyrir svo ég geti skoðað þau aðeins! :) Stefán Ómar tilkynnti mér að hann væri komin með nýja kærustu! Ég spurði hann nú útí hinar kærusturnar tvær en hann sagðist bara eiginlega vera kominn með ógeð af þeim! Krakkinn er 8 ára gamall og hann er strax orðinn algjör player! Ef hann verður svona þegar hann fer uppí menntaskóla og verður eins og öll þessi ógeð sem virðast vera að taka yfir skólanum núna, þá afneita ég honum!
Krakkar eitthvað að missa það í þessum skóla eða? Maður er ekki að heyra neitt of góðar sögur! Nema að sjálfsögðu af Seyðfirðingunum ;) eða allaveganna flestir af þeim!
Ég ætla fyrirfram að biðjast afsökunar á komandi stafsetningarvillum og öllum þeim sama hafa verið hérna! Þannig er nú bara mál með vexti að ég er alltaf að drífa mig svo að skrifa að ég skrifa aldrei öll orðin sem ég hugsa þannig þið verðið bara að fylla í eyðurnar ;)
En jæja, þetta er orðið of langt og ég gæti haldið svo endalaust áfram að ég held ég setji bara punktinn hérna og segi öllum hvað ég sakna þeirra ooof mikið og myndi gera mikið til að fá knús frá öllum í firðinum fagra! ;*
Arna kveður! ;)
ohh, hvað við erum sætar! :)
P.S. Hvað er málið með allar þessar martraðir! Mér alls ekki farið að standa á sama!
02. október 2008 klukkan 18:28
Arna Magnúsdóttir 5 athugasemdir
Já, thá er sunnudagurinn 28. september runninn upp hérna hjá mér í Madrid thó svo thid tharna á klakanum erud eitthvad ad hangsa ennthá á 27. sept! Sídustu dagar hafa verid teknir í rólegheitunum thangad til í gaer og í dag! Hef bara verid ad passa Victor Pétur á morgnanna á medan stelpurnar eru í skólanum og Inga ad skólast og Vicente ad vinna. Thaer koma svo heim um hálf 3 og leika sér og fer stundum med thaer á róló. Skemmtileg rólómenning hérna! alltaf fullt af fólki og foreldrar eru almennt eru duglegir ad fara med bornin sín á róló. Get ekki sagt ad madur sjái thad mikid á Seydis. Séd mommu í anda med Stefáni Ómari á róló ;) Svo á fostudaginn hitti ég Ellu og Thórdísi nidrí bae og vid roltum adeins og ég versladi mér hlaupaskó og svona.. fengum okkur svo ad borda og eftir matinn fórum vid Ella á smá pobbarolt en Thórdís fór bara heeim! kíktum á Murphy´s og hittum thar Breta sem komu til Madridar í tvo daga í smá skemmtiferd thar sem einn theirra var ad fara ad gifta sig! Vid Ellu spjolludum mikid vid thá Richard og Richard! gaman ad thví! svo var tekinn taxi heim um 3 leytid! mjooog skemmtilegt kvold ad flestu leyti sem átti bara ad vera smá tjill... í dag voknudum vid svo ferskar kl 10 thar sem planid var ad fara í Warner Bros gardinn sem og vid gerdum. Held ég setji daginn bara upp í nokkrum punktum!
fórum úr húsi 40 mín í 12. Drífdum okkur í hradbanka, Open Cor og svo í straetó.
Thurfti ad fá mp3 spilarann hennar Ingu thar sem minn var frosinn! svo thegar vid erum í lestinni seinna um daginn thá frýs hann líka!!! allt í gódu lagi samt núna med thá báda en ég meina! hverjar eru líkurnar?
vorum varla farnar af stad thegar Ella tharf ad pissa!
leitudum ad klósetti á Moncloa lestarstodinni en ekkert fundum ekkert!
tókum metro á hina lestarstodina og ekki fundum vid klósett neins stadar!
tókum lest á Pinto og ennthá finnst ekkert klósett! + thad ad vid thurftum ad bída í 45 mín eftir lestinni!
komumst svo loks í gardinn kortér í 3 eftir 3 tíma ferdalad og ad sjálfsogdu strax farid á klósett :)
keyptum mida og ad sjálfsogdu lenti ég í veseni med midann minn og ad komast inn!
komst loks inn og vid fórum í magnadan rússíbana sem vid thurtum ad bída í klst í rod! en thad var vel thess virdi!
fórum svo í snúningstaekid sem mamma missti sig í og oskradi úr sér lungun í hér um árid!! :)
okkur fannst thad nú ekkert spes ;)
fengum okkur og borda og thá byrjadi svo ballid!
vorum rétt sestar nidur thegar ég tek eftir pari ad kela sem er svo sem ekkert athugavert thar sem Spánverjar eru ógedslegir thegar kemur ad thví ad kyssast á almannafaeri! alveg fáránlegt hvernig thetta fólk er! getur ekki tekid hendurnar af hvort odru!
en allaveganna! thegar ég horfi betur tek ég eftir thví thetta er karlkyns samkynhneigt par! (thad má víst ekki segja hommi hér afthví thau skilja thad ord)
Bendi Ellu á thetta og ádur en vid vitum af byrjar annar ad eiga munnmok vid hinn í midjum veitingarstad í gardi med fullt af bornum og their sátu vid glugga!!
Svo thegar vid sjáum thá betur thá voru their ekki meira en svo 16 ára gamlir!
Thegar their standa svo upp og fara thá er drengurinn med thennan svakalega bóner! Thetta var alveg magnad!
Jaeja, forum svo í rússíbana thar sem vid thurftum ad í 70 mín í rod! pínulítill gangur í lokudu rými og fólk ad reykja! og fólk ad rydjast! óendanlega pirrandi!
gódur rússíbani samt!
fórum svo í 3ja og sídasta rússíbanann sem var alveg geeedveikur! og thurftum bara ad bída í 40 mín! hins vegar var thar par fyrir framan okkur sem gátu ekki tekid tungurnar útúr hvort odru!! vid vorum med 2 por fyrir framan okkur og 1 fyrir aftan okkur! jájá!
svo var ákvedid ad fara bara heim enda ordnar vel threyttar!
thegar vid komum inná lestarstodina heyrum vid í lestinni og drífum okkur ad kaupa mida!
Ella hleypur á undan mér til ad halda lestinni opinni á medan ég kaupi minn mida!
ég hleyp svo af stad og sé lestinni keyra í burtu! (gerdist líka thegar vid vorum tharna 2005)
Svo er Ella ekki tharna thannig ég hélt ad hún hafi bara farid á undan mér og ég bolva henni í hausnum en svo kemur hún og fór hún thá upp vitlausan stiga ;) thessi eeelska! :)
jaeja, bídum thar í klst eftir lestinni! Eftir thad gekk allt nokkud vel fyrir sig og vid komumst heim á endanum! ég thurfti reyndar ad bída eftir straetóinum í 25 mín en eftir alla bidina í dag thá var thad nú ekki neitt neitt!
ligg núna upp í rúmi og er ad paela ad fara ad kúra mér! enda kl ordin 1 og ég fékk ekki nema um 5 tíma svefn med truflunum í nótt! dreymdi samt svo vel eitthvad! sem er gód tilbreyting frá thessum martrodum sem eru búnar ad vera ad elta mig! búin ad 2 eftir ad ég kom og gud minn almáttugur hvad thad er ógedslegt! einn var svona í grófum dráttum um mig í útskriftarferdinni og hópur af svortum monnum koma ad mér og sprauta mig med einhverju svortu efni og taka mig svo í eitthva hús og laesa mig thar inni! halda áfram alltaf ad sprauta mig! svo reyni ég ad flýja en their ná mér og setja mig í taeki sem gefur mér rafstraum! nae svo ad flýja á endanum er alltaf med áhyggjur ad their nái mér! Hinn var um mig í Ísrael med byssumann á eftir mér ad skjóta mig! veit ekki hvad málid er!
En jaeja, thetta er ordid yfirdrafid ooof langt! ég setti orfáar myndir inn frá skemmtigardinum í dag en thaer er nú ekki svo merkilegar! Sakna ykkar allra á klakanum og hlakka til ad KOMA HEIM UM JÓÓÓLIN ;) (thad er sem sagt komid á hreint ad ég komi!:)) Adios ;*
27. september 2008 klukkan 23:09
Arna Magnúsdóttir 12 athugasemdir
Jaeja, thá er madur búinn ad vera hérna í 2 vikur! og thad er sko margt og mikid búid ad gerast sídan sídast! Sídustu dagar hafa bara verid mjog skemmtilegir :) vid Ella kíktum nidrí bae á fimmtudaginn... kíktum í búdir, lobbudum adeins um, fengum okkar ad borda og skemmtum okkur bara konunglega! :) vorum svo komnar heim til mín um 11 leytid og thad var horft á sex and the city thangad til vid sofnudum! á fostudaginn eldudum vid pasta í hádegsimat handa okkur ollum og bara tjillad... svo fór ég med henni heim thar sem verid var ad halda upp á 3ja ára afmaeli Núríu Líf. Ég fór svo bara heim eftir afmaelid thar sem ég aetladi ad fara snemma sofa thar sem vid Ella aetludum ad kíkja út á laugardagskvoldid :) en thá fyrst byrjadi aevintýrid!! ég beid alltaf eftir ad thad staedi Atocha á skiltinu í lestinni en aldrei kom neitt! ég var farin ad hafa svolitlar áhyggjur af thessu! jaeja, ég ákved ad halda adeins áfram á einni stodinni thó mér finndist eins og ég aetti ad fara út! svo thegar hún fer af stad thá sé ég Atocha á skilti fyrir utan! ég endadi thví á endastodinni! Fer og kaupi mér mida í Metro en thad gengur hálfbrosulega og vélin neitar ad taka vid midanum mínum! thad gengur á endanum og ég kemst í metroinn og thar tharf ég ad fara í gegnum 14!!!! stopp ádur en ég komst nidur á Sol thar sem ég tek mína línu og svo straetó heim! rétt nae straetóinum annars hefdi ég thurft ad bída í hálftíma í vidbót! en ég komst heim á endanum eftir 2 1/2 tíma ferdalag í stadinn fyrir ad vera í um 1 1/2 tíma! kom heim daudtreytt og med dúndrandi hausverk!
Á laugardaginn kíktum vid Ella svo á naeturlífid í Madrid. Vorum komnar inní bae um 11 og thad komu strax tveir Nígeríumenn á tal vid Ellu og svo maeti ég svaedid og their sýna okkur einhvern stad og elta okkur svoolítid mikid! nádum svo loks ad stinga thá af! lentum svo í thví ad labba yfir grind sem blés upp vindi og kjólarnir beint upp í loft! margir tugir af fólki í kringum okkur og vid hlóum eins og vitleysingar og fólkid líka! úúúps! svo endudum vid inn á einhverju dansstad og thar var bara svona líka gaman! hitta mjooog fallega Finna! starsfólk ad staupa út í eitt og vid fengum 2 eda 3 staup hjá theim! Svo var bara dansad og spjallad vid fullt af fólki.... fengum slatta af athygli enda frá framandi landi! :) en svona í heildina var mjog gaman! vorum komnar inná Metrostod kl 6 og svo thurfti ég ad bída eftir straetóinum í klst og var komin heim kl 8! ekki gert thad lengi! ekki sídan bara sídasta sumar held ég! svo var bara sofid til 4, farid med stelpurnar á róló og eldad karrífisk í gaer! fór snemma í háttinn en sofnadi ekki fyrr en 12! of pirrandi... fékk blódnasir baedi thegar ég vaknadi svo thegar ég var farin ad sofa... veit ekki afhverju thetta gerist en ég fae stundum blódnasir bara svona uppúr thurru! ekki toff! núna sit ég bara í sófanum, horfandi á Naeturvaktina og med Victor Pétur hjá mér! Vicente er farinn ad vinna aftur og Inga er ad ná í stelpurnar. Naestu dagar eru svo sem ekkert sérstaklega planadir annad en ad vera hérna heim og passa og svoleidis ad sjálfsogdu :) svo byrjar skólinn í naestu viku og verdur thá spaenskan maasterud! :)
Svo er nú gaman ad segja frá thví ad ég hef prófad ýmsan mat sídan ég kom hingad! eins og t.d. fíkjur sem eru mjog gódar, mangó sem er enn betra, mozzarellaost sem mjog gódur, avakado sem er mjog gott, papriku fyllta krabbakjoti sem var hins vegar alveg svaaakalega vond! svo er rabas alveg svakalega gott sem er sem sagt djúpsteiktur smokkfiskur og margt margt fleira sem ég hef fengid mér ad borda hérna! hins vegar kem ég mér ekki í thad ad borda tómata! their eru hreinlega ooof vondir! annars elska ég matarvenjurnar hérna! thad er tekinn svo gódur timi í ad borda hérna... klst eda meira í stadinn fyrir kannski 10 mínútur heima thar sem maturinn er gjorsamlega skófladur í sig! hérna eryfirleitt forréttur, svo náttúrulega adalrétturinn og svo eru alltaf skornir nidur ávextir í eftirmat! er ad meta thetta!
Svo var ég ad fá pakka núna rétt í thessu :) alltaf gaman ad fá póst! dót frá firdinum fagra sem ég gleymdi! jiii, Victor Pétur er ooof saetur hérna hjá svo steeinsofandi! :) vard bara ad koma thessu ad :) mér finnst eins og ég sé ad gleyma einhverjuuu! en man bara ekki hvad thad svo sem á ad vera! held ad ég segi thetta gott í bili!
Adiós - ArnaM
p.s. Gudbjorg, til hamingju med afmaelid í gaer ;)
22. september 2008 klukkan 12:51
Arna Magnúsdóttir 8 athugasemdir
Mamma var eitthvad ad tuda vid mig ad ég vaeri haett ad blogga thannig aetli madur verdi ekki ad gera konunni til geds ;) og aetla ég ad byrja a thví ad óska henni módur minni til hamingju med 45 ára afmaelid! djofull erudi ordin gomul! manstu hvad ég aetladi ad gefa thér í 45 ára afmaelisgjof?
En lífid gengur sinn vanagang hérna í Villanueva del Pardillo! stelpurnar byrjadar í skólanum og eru ad fýla sig held ég bara alveg rosalega vel! Victor Pétur er alltaf jafn saetur :) er ad passa hann núna og sefur hann hérna hjá mér vaerum svefni! Inga og Vicente eru med stelpurnar hjá tannsa! Ég hitti Thórdísi og Ellu (Au-Pairinn hans Valda) á fimmtudaginn inn í Madrid og lobbudum vid adeins um, gengum nidur hórugotunua gódu, fórum í tvaer ,,sex shops" og hofdum gaman :) og já, ég skrádi mig í skóla og ég byrja í honum 2. október! hlakka of mikid til :) Helgin var bara oll hin rólegasta hjá mér! thad var einhvers konar menningarnótt í Madrid á fostudaginn afthví thad var fullt tungl og tunglid er búid ad vera of flott hérna! elska sólsetrid hérna! Á mánudagskvoldid ákvad ég ad fara í smá labbitúr um thorpid og labba bara eitthvad! var allt í einu komin inní gamla bae sem er svolítid frá hédan, en ekki svo, og vissi vodalega lítid hvar ég var! var nú svo sem ekkert svo hraedd thar sem thetta er svo lítid thorp en samt óthaeginlegt ad vita ekki nákvaemlega hvar madur er! en ég komst heim á endanum eftir um 50 mínútna gongu :)
Svo í gaer hittumst vid Ella nidrí bae! ég thurfti ad bída eftir henni í smá stund thar sem hún villtist adeins í lestinni :) lenti reyndar í thví ad einhverjir menn lobbudu upp ad mér og stódu bara tharna! ég labbadi nú baara í burtu! hún skrádi sig svo í skólann minn og verdum vid saman í tímum! pabba lýst nú ekkert á thad og heldur ad ég eigi ekkert eftir laera! ég efa thad ekki ad ég eigi alveg eftir ad ná tokum á málinu thó vid eigum eftir ad tala einhverja íslensku tharna! svo kíktum vid í bíó á Mamma Mia! fór á hana líka í Rvík fyrir ca 2 vikum! en thad var ekkert annad á thessum tíma! svo eftir bíóid var bara kíkt í smá gongu og fórum vid á einhvern írskan pobb og horfdum smá á Meistardeildina! héldum áfram ad labba og lobbudum ad Plaza Mayor sem var ooof flott! tek myndir thegar ég fae myndavélina hennar Stefaníu :) thad var 29 stiga hiti og ég er ekki ad grínast, ég var gjorsamlega ad leka nidur! rennsveitt og eldraud í framan og bara ógedsleg! fólkid í lestinni og straetóinum hafa orugglega fundist ég vera ógedsleg! Svo aetlum vid Ella ad hittast nidrí bae á morgun og aetlar hún svo ad koma med mér heim og gista hérna og leika vid mig á fostudaginn! svo er víst regla hér ad gestir thurfa ad elda og aetlum vid ad bralla eitthvad í eldhúsinu :) skemmtileg hefd :) svo fá thau alltaf uppskriftina svo thau geti eldad thad aftur ef theim finnst thad gott :) svo verdur kíkt eitthvad út á laugardagskvoldid :) vonandi verdur pósturinn minn kominn og er myndavélin thar :)
Svo í straetóinum á leidinni heim í gaer hugsadi ég nú mikid um lífid og tilveruna og fattadi thad hvad ég er ógedslega heppin ad vera hérna og hvad thad eru mikil forréttindi ad fá ad gera eitthvad svona! Ekki allir sem fá ad upplifa svona aevintýri! Thetta er eitthvad sem madur á aldrei eftir ad gleyma og á eftir ad geyma med sér thad sem eftir er!
En jaeja, ég held ad ég segi thetta gott í dag! Bid ad heilsa ollu saeta fólkinu mínu og thá sérstaklega ollu yndislega fólkinu mínu á sjúkrahúsinu ;) sakna ykkar allra alveg vodalega mikid ;*
Adios ;)
17. september 2008 klukkan 15:52
Arna Magnúsdóttir 6 athugasemdir
Vildi bara láta ykkur vita að það eru komnar inn nokkrar myndir í myndaalbúmið! Bara svona rétt til að sýna ykkur fólkið mitt og heimili :) Blogga almennilega bráðum! Adios ;)
13. september 2008 klukkan 16:16
Arna Magnúsdóttir 4 athugasemdir
Um mig: Ég er bara 19 ára lítil snót frá Seyđisfirđi sem er búin ad ferđast alla leiđ til Villanueva del Pardillo sem er lítiđ og krúttlegt ţorp rétt fyrir utan Madrid! Ţar er ég ad passa 3 lítil, ćđislega sćt börn :) Svo verđur fariđ alla virka daga inní Madrid og ţar mun ég setjast á skólabekk og lćra spćnskuna!
Áćtlađur komutími heim er ágúst-september 2009 og ćtlar mín ţá ađ vera farin ađ tala reiprennadi spćnsku! :)
Annađ: Freedom is taken so much for granted when you don't appreciate the small things you have