Dagur 33

Sælt veri fólkið! Hvernig hafa svo allir það heima í kreppunni? Minn dagur er búinn að fara í það að liggja upp í sófa og horfa á alls konar þætti í tölvunni! Byrjaði kl hálf 4 og er enn að fyrir utan kvöldmatarpásu. Stelpurnar eru hjá ömmu sinni og afa þannig ég hef ekkert séð þær í allan dag og ég er bara ekki frá því að ég sakni þeirra smá! Veit eiginlega ekki afhverju ég er að blogga þar sem ég hef voðalega lítið marktækt að segja!

Kjellan kíkti útá lífið í gær með henni Theo. Grænlenskri stelpu sem ég kynntist í skólanum. Við skemmtum okkur bara mjög vel og var ég komin heim kl 6 og ég er ekki að grínast! mér var orðið líkamlega illt af þreytu! Enda ekki ætlast til að manneskja eins og ég vaki í 22 klst!
Skólinn gengur bara alveg þokkalega hjá mér! Hins vegar panikka ég alveg svakalega alltaf þegar ég á að segja eitthvað! það snúa sér alltaf allir við og horfa á mann og svo er hlegið stundum og svona ég er ekki að höndla þessa pressu! Ég er samt farin að skilja aaðeins meira þó svo að það sé nú ennþá af skornum skammti! Ég er farin að kynnast samt nokkrum stelpum aðeins betur. Ég ákvað á fimmtudaginn að vera voðalega dugleg og tala við þær í skólanum en svo þegar kom að ögurstundu þá þorði ég því ekki! Þannig eftir skóla ákvað ég að túristast aðeins þar sem ég átti ,,the day off".  Fór á Plaza de Espana og labbaði að konungshöllinni og niður í garð sem er þar og tók nokkrar myndir og skoðaði mig um! tók svo upp kort af Madrid og var svona að spekulera hvert ég ætti að fara næst en ákvað svo bara að fara heim! Ég var eitthvað ekki í góðu skapi við sjálfa mig að reyna ekki að tala við stelpurnar. En svo þegar ég var að labba úr garðinum þá mæti ég stelpunum og fer að leika við þær :). Tvær voru frá Þýskalandi, ein frá Austurríki og svo þessi grænlenska. Talaði mest við Söru sem er frá Austurríki og Theo og náðum við nokkuð vel saman. Og eins og ég sagði þá fórum við Theo út í gær :) Svo var ég bara engan veginn að nenna út í kvöld :) Svo heyrist mér eins og það sé heavy rigning og vindur! jafnvel eldingar en ég nenni ekki að tjekka á því!

En svo ég haldi nú áfram að tala um Spánverja en þá hef ég tekið eftir því að, allavegnna stelpurnar, þær þvo sér ekki alltaf um hendurnar þegar þær eru búnar á klósettinu! Finnst þetta alveg stórmerkilegt! Ég meina, er þetta ekki eitthvað sem maður kennir börnunum sínum um leið og það fer að nota klósettið! Jahh, það hefði ég allaveganna haldið! Skil þetta ekki alveg!
Og svo ég haldi áfram að tala um draumana mína líka! Nú síðast þá dreymdi mig rússíbanaslys! Mér finnst þetta alveg svakalegt! Ég er nú ekki vön að muna draumana mína en nú allt í einu eru það hver martröðin á fætur annari! Ég veit ekki alveg hvað ég á að halda!

En jæja, ætli ég fari ekki að segja þetta gott í bili! Ætla að setja inn nokkrar myndir í albúmið eftir smá...

Þangað til næst,
-Arna


Ég og Theo
11. október 2008 klukkan 22:24
Arna Magnúsdóttir
Auður Ösp GuðjónsdóttirÉg sé að spánarlífið fer bara vel með þig! lítur allavegana vel út =) Gaman að því að þú sért búin að kynnast einhverjum stelpum fleirum en íslensku! Ég vona bara innilega að ég fari að kynnast einhverjum...En nóg um mig...hvenær ferðu heim? og hvenær til baka??
13. október 2008 klukkan 13:04
Auður Ösp GuðjónsdóttirE.S Sakna þín alveg rosalega, og mig langar svo að fara til þín, en mér finnst ekki nógur tími til að heimsækja þig bara seinni vikuna, þar sem ég þarf að vera komin á miðvikudeginum =( Vona að ég komist næst
13. október 2008 klukkan 13:05
Arna MagnúsdóttirÉg reikna með að fara í kringum 16.-18. des heim og svo aftur út 6.-7. jan. Hvað ertu að spá?
Sakna þín líka ;* vona að þú komist einhvern tímann seinna þá í heimsókn!
13. október 2008 klukkan 16:01
Auður Ösp GuðjónsdóttirÉg væri sko alveg til í að vera þarna úti hjá þér! Kannski ég fari þangað út og kíki á fjölskylduna, ef mér líst ekkert á, þá verður þetta bara heimsókn til þín =) en hún vill að ég komi um 25 okt...ss bara strax
15. október 2008 klukkan 13:42
Elísabet Þórunn Jónsdóttirég er að fara heim á þriðjudaginn! sjit viðverðum að vera duglegar að gera gott áður en ég fer
16. október 2008 klukkan 07:17
Telma skrifar ...
Bara að kasta á þig kveðju og BóBó knúsi mð dasi af kossum :*
16. október 2008 klukkan 17:25

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Eitt og annað um mig

  • Nafn: Arna Magnúsdóttir
  • Netfang: arna_magg@hotmail.com
  • Staður: Villanueva del Pardillo / Madrid
  • Atvinna: Au-Pair á Spáni
  • Um mig: Ég er bara 19 ára lítil snót frá Seyðisfirði sem er búin ad ferðast alla leið til Villanueva del Pardillo sem er lítið og krúttlegt þorp rétt fyrir utan Madrid! Þar er ég ad passa 3 lítil, æðislega sæt börn :) Svo verður farið alla virka daga inní Madrid og þar mun ég setjast á skólabekk og læra spænskuna! Áætlaður komutími heim er ágúst-september 2009 og ætlar mín þá að vera farin að tala reiprennadi spænsku! :)
  • Annað: Freedom is taken so much for granted when you don't appreciate the small things you have

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Innskráningar kubbur